Anna C
Markþjálfun eða ráðgjöf
Markþjálfun eða ráðgjöf
Couldn't load pickup availability
Stundum veistu að þú vilt breytingu — en ert ekki alveg viss hvar þú átt að byrja.
Í markþjálfun færðu rými til að staldra við, ná skýrleika og finna út hvað þú vilt raunverulega. Saman skoðum við hvað er að halda aftur af þér, hvaða markmið skipta þig mestu máli og hvernig þú getur tekið raunhæf skref í átt að lífinu sem þú vilt lifa.
Markþjálfun snýst ekki um að einhver annar segi þér hvað þú eigir að gera. Hún snýst um að hjálpa þér að finna þín eigin svör, styrkja sjálfstraustið og breyta hugmyndum í aðgerðir.
Markþjálfun getur hentað þér ef þú vilt meðal annars:
- fá meiri skýrleika og stefnu
- byggja upp sjálfstraust
- setja þér markmið og fylgja þeim eftir
- skapa betra jafnvægi í lífinu
- vinna með mörk og forgangsröðun
- taka stórar ákvarðanir
- fara út fyrir þægindarammann
- gera drauma þína að veruleika
Þú þarft ekki að hafa allt á hreinu áður en þú kemur. Við byrjum einfaldlega þar sem þú ert.
Bókaðu núna!
Þú átt skilið gott líf
Markþjálfun og ráðgjöf á skrifstofu Önnu C á Sundaborg 5-7, 104 Reykjavík eða zoom
Share
